Ég brenn fyrir nýsköpun, gervigreind og vöruþróun. Ég leiði samstarfsverkefnið Glóð hjá Almannarómi og var áður vörustjóri GRID.
Gervigreind hefur átt hug minn allan frá því ChatGPT kom út 2022. Sem vörustjóri í sprotafyrirtæki þurfti ég að tileinka mér tæknina hratt til að skilja áhrif hennar á vöruþróun.
Síðan þá hef ég lifað og hrærst í þessum gervigreindarheimi og í dag hef ég þróað ófáar lausnir sjálf, haldið námskeið og fyrirlestra og skrifað greinar um gervigreind.
Í dag leiði ég framtakið Glóð sem aðstoðar sprota, fyrirtæki og stofnanir að taka gervigreindarverkefnin sín lengra með auknu reikniafli, ráðgjöf og gagnasöfnum.
Menntun
-
2014-2017
B.Sc. í tölvunarfræði
-
2011-2014
B.Sc. í sálfræði
Reynsla
- Frá 2015 starfaði ég sem flugfreyja og seinna yfirflugfreyja hjá WOW air. Eftir útskrift 2017 flutti ég mig yfir í tölvudeildina þar sem ég stýrði innleiðingu og rekstri á lykilkerfum eins og sölulausnum um borð, vaktaplanagerð og kerfi þjónustuvers.
- Ég hóf störf hjá Advania sem sérfræðingur í viðskiptagreiningu og lærði þar úrvinnslu gagna og gerð mælaborða. Ég færði mig þaðan í verkefnastýringu á innleiðingu slíkra mælaborða og greininga fyrir viðskiptavini og endaði síðan sem vörustjóri spjallmennalausna. Í því hlutverki sá ég um sölu, markaðssetningu, þarfagreiningu, tilboðs- og samningagerð, verkefnastýrði innleiðingunum, sá um samskipti við birgja og viðskiptavini og hélt kynningar og veffundi til að kynna vöruna.
- Hjá GRID mótaði ég stefnu vöruþróunar með því að skilgreina markmið út frá endurgjöf notenda, gögnum um notkun, markaðsrannsóknum og viðskiptamarkmiðum. Ég vann þvert á teymi og fylgdi verkefnum eftir til að tryggja að markmiðum væri náð. Sem hluti af litlu teymi tók ég að mér fjölbreytt verkefni og var meðal annars í Growth-teymi fyrirtækisins þar sem við framkvæmdum tilraunir (A/B testing) og unnum að aukningu notenda (activation), endurkomu þeirra (retention) og mælanlegum vexti.
- Í dag leiði ég framtakið Glóð. Glóð er Evrópuverkefni sem sex stofnanir koma að en við veitum gjaldfrjálsan aðgang að reikniafli, gögnum og þekkingu. Okkar markmið er að lækka þröskulda og hraða þróun gervigreindarverkefna á Íslandi með þessari aðstoð. Auk þess kem ég að skýrslunni Staða gervigreindar á Íslandi og held erindi og námskeið um gervigreind.